Leikskólinn Álfaberg tekur nú þátt í Vináttu – vekefni Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. Starfsmenn leikskólans hafa farið á námskeið og fengið Vináttu – námsefnið í hendur.
Barnaheill – Save the Children á Íslandi standa að og gefa út Vináttu með góðfúslegu leyfi og í samstarfi við Red Barnet – Save the Children og Mary Fonden í Danmörku, sem þróuðu efnið og gáfu fyrst út árið 2007. Efnið nefnist Fri for Mobberi á dönsku og er forvarnarverkefni gegn einelti fyrir leikskóla og yngstu bekki grunnskóla. Barnaheill hafa þýtt, staðfært og framleitt það efni sem einkum er ætlað börnum frá 3 – 6 ára.
Mikilvægt er að hefja forvarnarstarf strax á leikskólastigi með því að vinna með góðan skólabrag, jákvæð samskipti, vinsemd og virðingu fyrir fjölbreytni í nemendahópnum.
Við vitum að einelti á sér stað í skólum, sérstaklega meðal barna í 4.-7. bekk. Rót eineltis má þó oft rekja til leikskóla. Það er því mikilvægt að hafa afskipti snemma og hefja forvarnarstarf í leikskólum til að koma í veg fyrir einelti síðar. Vinátta er góð leið til þess.
Taska með fræðsluefni
Um er að ræða tösku sem inniheldur efni fyrir nemendur og kennsluleiðbeiningar fyrir starfsfólk, auk efnis til að nota með foreldrum og starfsfólki. Hvatt er til samtala og leikja með börnum sem byggja á gildum verkefnisins; umhyggju, virðingu, umburðarlyndi og hugrekki. Gert er ráð fyrir fjölbreyttum vinnubrögðum, svo sem hlustun, umræðu og tjáningu í leik, jafnt úti sem inni. Í töskunni er bangsinn Blær, nuddprógramm, samræðuspjöld, klípusögur, sögubók, geisladiskur og tónlistarhefti og leiðbeiningar um notkun og fróðleikur fyrir starfsfólk. Jafnframt fylgir efninu litlir bangsar fyrir hvert það barn sem tekur þátt í verkefninu.
Hugrakkir krakkar segja frá
Markmið Vináttu - verkefnisins er:
að samfélagið í leikskólanum einkennist af umburðarlyndi og virðingu.
að skapa umhverfi þar sem börn sýna hvert öðru umhyggju.
að börn læri að bregðast við neikvæðri hegðun og einelti.
að virkja einstaklinga og gefa þeim hugrekki til að grípa inn í og verja félaga sína.
Bangsinn Blær
Blær er táknmynd vináttunnar í verkefinu. Blæ fylgja litlir hjálparbangsar sem ætlaðir eru hverju barni sem tekur þátt í Vináttu. Blær og hjálparbangsarnir tákna traust og vináttu og er ætlað að minna börnin á að passa upp á aðra og að vera góður félagi allra. Öll börn á Álfabergi fá einn bangsa að gjöf og verður hann ávallt geymdur í leikskólanum í skúffu barnsins. Ekki verður heimilt að taka hann heim fyrr en barnið hættir í leikskólanum.
Markhópar
Vináttuverkefnið er ætlað þremur markhópum og í töskunni er efni fyrir þá:
Kennarar: Kennarar eru hvattir til að skapa umhverfi gegn einelti og virkja börn í athöfnum sem styrkja tilfinningagreind þeirra.
Foreldrar: Foreldrar bera ábyrgð á að tryggja að börn fái skilaboð um að hægt sé að koma í veg fyrir einelti með því að styðja velferð þeirra og stuðla að góðum samskiptum í vinahópum. Á leikskólanum er veggspjald með ráðum til foreldra um góð samskipti og vináttu.
Börn: Vináttuverkefnið stuðlar að samræðum fyrir börn um slæma hegðun og einelti og fræðir þau um leiðir til að takast á við vondar aðstæður, segja frá og segja nei. Unnið verður með námsefnið með 3 til 6 ára börnum. Von er á námsefni fyrir yngri börnin okkar á næstu árum.
Það er lykilatriði fyrir árangur að við vinnum saman og allir taki þátt til að koma í veg fyrir einelti.
Þú getur lesið meira um Vináttu á barnaheill.is/vinatta.
Bestu kveðjur, starfsfólk Álfabergs.