Leikskólinn er fyrsta skólastigið og upphaf skólagöngu barna.
Í gildi eru innritunarreglur í leikskóla Hafnarfjarðarbæjar sem miða við að börn fá leikskólapláss allt frá 15 mánaða aldri (fer eftir fæðingarmánuði). Börn sem falla undir viðmið um forgang (forgangshóp) eiga möguleika á að komast fyrr að.
Í upphafi leikskólagöngu veitir leikskólastjóri allar upplýsingar um áherslur og markmið skólastarfsins í leikskólanum (uppeldis- og menntastarfs leikskólans) og allar helstu upplýsingar um starfsemi.Auk þess fær foreldri/ forsjáraðili tækifæri til þess að kynnast skólanum og starfsháttum hans. Við upphaf leikskólagöngu gera foreldrar/forsjáraðili og leikskólinn með sér samning um leikskóladvölina.
Leikskólagjöld
Leikskólagjöld eru innheimt samkvæmt gjaldskrá. Þú getur reiknað út kostnað við leikskóladvöl með reiknivél hér fyrir neðan.
Afsláttur í boði.
- Systkinaafsláttur. Systkinaafsláttur er veittur vegna systkina sem eru samtímis í leikskóla, í frístundaheimili eða hjá dagforeldri. Annað barn fær 75% afslátt. Þriðja barn 100% afslátt. Fjórða barn 100% afslátt. Eingöngu er veittur systkinaafsláttur af almennu dvalargjaldi.
- Tekjutengdur afsláttur. Foreldrar geta sótt um tekjutengdan viðbótarafslátt á Mínum síðum sem er 50% annars vegar og 75% hins vegar. Afsláttur er eingöngu veittur af almennu dvalargjaldi. Sjá tekjuviðmið í gjaldskrá .
- Afsláttur er ekki veittur af fæði (morgunhressingu, hádegismat og síðdegishressingu)
Sótt er um viðbótarafslátt á Mínum síðum. Ekki er hægt að fá hvoru tveggja systkinaafslátt og viðbótarafslátt.
https://www.hafnarfjordur.is/ibuar/skolar-og-born/leikskolar/